ÞjónustuverÞjónustuverið er önnur af tveimur framvarðarsveitum þjónustusviðs vegna þeirra miklu samskipta sem það hefur við viðskiptavini fyrirtækisins. Þjónustuverið veitir margþætta þjónustu við rekstur tölvukerfa. Það veitir fyrsta stigs svörun við fyrirspurnum frá viðskiptavinum í gegnum síma og/eða tölvupóst. Þjónustuverið er mannað allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. Það hefur umsjón með framkvæmd afrita og sinnir sjálfvirkum eftirlitshugbúnaði á tölvukerfum og vélbúnaði. Þjónustuverið veitir alhliða aðstoð við einstaklinga sem og sérhæfða þjónustu fyrir stærri lykilviðskiptavini með tilgreinda þjónustufulltrúa. Miðlæg stjórnun á aðgangsveitingum fyrir einstaklinga og fyrirtæki fer fram í þjónustuverinu. |